mygla
Posted on 08.18.08 by steini @ 3:10

Ég er ennþá að undra mig á því afhverju maður gúdderar að kaupa mygluost fyrir morðfé og telur sig vera að kaupa munaðarvöru, en á meðan hendir maður brauði og öðrum matvælum þar sem minnsta arða af myglu gerir vart um sig.

Skítaleikur áðan, strákarnir þurfa að hysja upp um sig buxurnar, standa vörnina og hitta almennilega á markið ef þeir ætla sér einhverja hluti í næstu umferð.

Ágætis hönnunar blog síða vitnar hér í íslenska hönnuðinn Bobby Breiðholt. Skemmtilegar myndir og sérstaklega finnst mér hverfa merking fyrir rvk vera töff.


Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar
Svör: Ekkert ennþá

skrítin frétt
Posted on 08.14.08 by steini @ 12:48

Gott dæmi um frétt sem vekur upp fleiri spurningar en hún svarar:

Kynningarfundi um Menningarnótt aflýst
Kynningarfundi, sem átti að vera í dag um dagskrá Menningarnætur í Reykjavík, hefur verið aflýst.

Afhverju er fundinum frestað aflýst? Er skipulag eitthvað í fucki? Tengist þetta viðræðum um meirihlutamyndun í borginni (ólíklegt) eða var bara einhver veikur?


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: 1 svar komið

boltinn og rúv
Posted on 08.14.08 by steini @ 7:53

Jæja, tapaður leikur gegn Kóreu. Ekki mikið við því svo sem að segja. Vantaði smá neista í sókninni og færin voru ekki að detta með okkur. Ég vil nú ekki taka svo djúpt í árina eins og maður hefur verið að sjá hjá öðrum og um það sem lýsandanum fannst, að dómararnir hafi verið hroðalegir. Auðvitað áttu þeir sín mistök og allt það, en þeir voru alls enginn auka leikmaður fyrir Kóreu eða algjör úrslitavaldur í leiknum.
Það sem mér finnst aftur á móti vera mjög leiðinlegt er hvernig vefsjónvarp rúv er að virka. Það var alveg hræðilegt að vera ekki með aðgang að sjónvarpi svona snemma morguns og þurfa að notast við vefsjónvarpið. Það var alltaf að detta út og bufferast aftur og aftur. Held ég hafi ekki náð 5min straight án þess að þurfa að endurhlaða spilarann. Þetta var sérstaklega taugatrekkjandi þegar streymið datt út þegar 5 min voru eftir og við 3 mörkum undir. Þegar ég náði sambandi aftur var 1 min eftir og munurinn allt í einu orðinn 1 mark! Rúv þarf klárlega að laga þennan part hjá sér á komandi dögum.

Annars er síðasti dagurinn minn á Bifröst að renna upp núna. Merkilegt að vera að fara héðan núna eftir 2 góð ár. En allt tekur víst enda og nú er komið að næsta kafla. Hver hann svo verður kemur bara í ljós. Helgin er svo frekar full bókuð, en hún inniheldur matarboð, partý, landsleik, grillun í gæsaveislu o.fl.


Skráð sem: Bifröst og Dagleg skrif og Netið
Svör: 1 svar komið

Tilbúningurinn í Beijing
Posted on 08.12.08 by steini @ 11:38

Þá er komið í ljós að hluti af opnunarhátíðinni í Beijin var tilbúningur og fölsun. Þ.e. litla stelpan sem söng svo fallega var að mæma og var bara á sviðinu afþví að hún þótti svo falleg, meðan “ljóta” stelpan var baksviðs og söng. Einnig var lítill hluti af flugeldasýningunni tölvugerður til að gera áhrifin enn meiri. Þetta með flugeldanan skiptir nú kanski ekki höfuð máli, en þetta með litlu stelpuna finnst mér helvíti ljótt að heyra. Þessi frétt hjá Telegraph lýsir ágætlega hvernig pólitísk áhrif og skipanir að ofan hafa haft áhrif á leikana.
Það leiðinlegasta við þetta er samt að fólk á eftir að minnast fake hlutanna en ekki íþróttaafrekanna.


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: Ekkert ennþá

þjófavarnir
Posted on 08.11.08 by steini @ 15:05

Ég legg til að þjófavarnir í bílum sem eru algengar í dag (háværar sírennur og flaut vegna þess að einhver rakst í bílinn) verði bannað en í staðinn verði tekinn upp sjálfseyðingabúnaður sem sprengir bílinn í loft upp. Ef það myndi ganga eftir myndi fólk passa sig að rekast ekki utan í bíla, en ef það myndi gerast, þá myndum við bara losna við klaufana. Auk þess myndum við hætta að heyra þetta endalausa sírenuvæl daginn inn og daginn út, heldur kæmi bara ein og ein sprenging í staðin.
Vil svo að endingu biðja einstaklinginn sem á bílinn sem hefur verið vælandi rétt hjá tónlistarskólanum í Garðabæ síðustu 20 min um að fara að slökkva á þessu. Íbúar hverfisins eru ekki að fíla þetta!

Horfði á handboltaleikinn við Rússa á English Pub um helgina. Mjög gaman og skemmtilegt að vera kringum taugatrekkta en ánægða íslendinga sem voru vel við skál á þessu mómenti. Gaurarnir sem sungu samt allan seinni hálfleik “oolei ooolei ooolei oolei oolei oolei….” eru hálfvitar og ættu að vera húðstrýktir á almannafæri.


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: Ekkert ennþá

fánar á ólympíuleikunum
Posted on 08.10.08 by steini @ 18:04

Það vakti nokkra athygli á þessum ólympíuleikum að þátttakendur frá Suður og Norður Kóreu hafi ekki gengið inn á opnunarhátíðina og keppt undir merkjum sameinaðrar Kóreu eins og hefur verið hefðin á Ólympíuleikum frá árinu 2000. Þess í stað keppa þessir þátttakendur núna undir merkjum hvors ríkisins fyrir sig.
Þessi hefð fékk mig aðeins til að stoppa og hugsa, enda heyrir maður alltaf af því að það sé regla á ólympíuleikum að óopinberir fánar megi ekki vera notaðir og í þau skipti sem það hefur verið gert, t.d. þegar Cathy Freeman tók sigurhringinn í Sydney með fána frumbyggja Ástralíu og 1993 þegar Colin Jackson fagnaði með Wales-ska fánann, var mikið umtal um það og nokkuð um gagnrýnisraddir. Einhverra hluta vegna fékk samt Kórea að keppa undir merkjum þessa óopinbera fána og ekkert var sagt við því.


Skráð sem: Dagleg skrif og Hugleyðingar
Svör: Ekkert ennþá

Setningarhátíð ólympíuleikanna
Posted on 08.08.08 by steini @ 13:19

Er að horfa á setningarhátíðina í sjónvarpinu og íþróttamennirnir eru í þessum orðum að ganga inn á völlinn. Það sem fer óstjórnlega í taugarnar á mér við þessa kynningu er það sem íslensku kynnarnir hafa að segja um hverja þjóð. Þeir nefna venjulega upp nafn landsins, íbúarfjölda og svo fara þeir að telja upp einhverjar landfræðilegar staðreyndir. Hvað landið sé stórt, hvaða lönd eigi landamæri að landinu o.s.frv. Auk þess segja þeir nafn fánaberans. Afhverju er maður ekki látinn vita meira um löndin í íþróttalegu samhengi? Segja manni í hverju fánaberinn keppir í, hvað landið sé sterkast í o.s.frv.
Þessar upplýsingar sem eru kynntar fyrir okkur væru fínar í landafræðitíma, en á setningarhátíð ólympíuleikanna er þetta bara fáránlegt!

bætt við: Engu að síður var þetta flott setning og athöfnin þegar kveikt var á eldinum var vel lukkuð.


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: Ekkert ennþá

Fólk er fíbbbbl!
Posted on 07.31.08 by steini @ 16:05

Eftir að hafa gert stutta rannsókn á atferli nokkura einstaklinga varðandi klósettpappírsnotkun þeirra (sjá hér) verð ég að segja að þið eruð öll asnar! Auðvitað snýr maður rúllunni þannig að pappírinn fari undir!!! Hvað annað spyr ég nú bara. Fólkið sem svaraði þessari spurningu hlýtur því bara að vera eitt af eftirtöldu; vitskert, rosalega áhrifagjarnt og þar af leiðandi fylgir það fyrsta svarinu í blindni, ekki með neitt verkfræðivit, órökhugsandi eða þá að gáfaða fólkið svaraði ekki einhverra hluta vegna. En já, ég sný klósettrúllunni þannig að pappírinn fari undir og hananú! Til að sýna fram á fáfræði ykkar og vitleysu mun ég fara í róttæka teiknivinnu á næstu dögum og sýna fram á hversu miklu vitrænna og rökréttara það er en að láta pappírinn fara undir. Á meðan bið ég fólk bara um að slaka á og lifa í sínu óspennandi einfeldningslífi með klósettpappírinn yfir.


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: It´s all happening! - (6)

óli borgarstjóri
Posted on 07.30.08 by steini @ 21:46

Shit, er þessi maður algjör hálfviti ??? Að þessi maður sé í ábyrgðarstöðu, hvað þá að hann sé borgarstjóri er klárlega skammarlegt fyrir Íslendinga. Hann er meira að segja miklu þverari en Gunnar I. Birgisson! Það þyrfti að brýna fyrir Ólafi að það að koma inn jákvæðum lýsingarorðum dugar ekkert fyrir heilt viðtal, það þarf að koma með svör eða eitthvað bitstætt en ekki endurtaka sömu lofsrulluna aftur og aftur sem stendur svo varla á neinum grunni. Jesús Kristur, maður fær bara kjánahroll við að hlusta á þetta.


Skráð sem: Dagleg skrif og Pólitík
Svör: Ekkert ennþá

rétta leiðin með klósettpappír
Posted on 07.29.08 by steini @ 18:13

Ég og Stjáni lentum í smá deilum um það hvað væri rétta aðferðin til að hafa klósettpappír á klósettpappírshaldaranum eftir að hafa séð þessa síðu. Einn okkar taldi þetta vera réttu leiðina, en annar vitlausa leið. Mig langar því að vita hvað fólk telur vera betri aðferð og hvernig rúllan er geymd hjá þeim


Skráð sem: Dagleg skrif
Svör: It´s all happening! - (13)

previous posts »
Á þessa síðu skrifar Þorsteinn Ásgrímsson hugarþanka sína og þras um hið daglega líf. Þorsteinn er 22 árs HHS nemi í Háskólanum á Biföst sem hefur áhuga á stjórnmálum, þjóðfélagslegum umræðum, tónlist, skvassi, trú- og siðferðismálum, kvikmyndum, heitum pottum og gufu, furðulegum hliðum lífsins, ferðalögum, handbolta og finnst ekkert slæmt að grípa í yoga einstöku sinnum.

Undirsíður
Myndir
Mússík
Eldri Myndir
Dvd Safnið
To-Buy list
Ég á Last-Fm

Klukkan í Seoul:

bleh

Efnisflokkar
Bifröst
Dagleg skrif
Djamm og skemmtanir
Ferðalög
Fréttir
grín
Heimsmálin
Hugleyðingar
Interrail
Kórea
Kúltúra
Myndir
Nöldur
Netið
Pólitík
quiz
Sniðugt stöff
Tónlist
tölvur og nördismi
Trúmál
USA
Veiði
Vesen

Nýjustu færslur
mygla
skrítin frétt
boltinn og rúv
Tilbúningurinn í Beijing
þjófavarnir
fánar á ólympíuleikunum
Setningarhátíð ólympíuleikanna
Fólk er fíbbbbl!
óli borgarstjóri
rétta leiðin með klósettpappír
dark knight
að og af
paradísarlaut
vonbrigði ársins hingað til
jafnréttispæling, darwinismi og olíuverð

Eldra efni
August 2008
July 2008
June 2008
May 2008
April 2008
March 2008
February 2008
January 2008
December 2007
November 2007
October 2007
September 2007
August 2007
July 2007
June 2007
May 2007
April 2007
March 2007
February 2007
January 2007
December 2006
November 2006
October 2006
September 2006
August 2006
July 2006
June 2006
May 2006
April 2006
March 2006
February 2006
January 2006
December 2005

Leit

Miðlun
RSS 2.0
Comments RSS 2.0
WordPress

Keyrt af krafti áfram af WordPress.

Innskrá
Krækjur
  • Bifröst

  • Daglegt

  • Fólkið

  • Fréttir

  • Gaman


  • Afskrá ?
    Til að skrá sig úr þjóðkirkjunni þarf einungis að fylla út þetta pdf skjal og senda á faxi á hagstofuna (569-2949). Með þessu lætur þú þín sóknargjöld (um 8500kr) renna í háskólasjóð frekar en beint til kirkjunnar. Nánar hér